já haldiði ekki að minns hafa ekki bara skellt sér á djammið á Föstudag!!! já þannig var að við vinkonurnar hittumst í mat heima hjá Hugrúnu Pé. og fórum svo á Kríuna sem er bar rétt fyrir utan Selfoss. og voru það engir aðrir en Dalton sem voru að spila, en ég get svo svarið það að annar gítarleikarinn er alveg hrikalega myndalegur uff!!!
en ég fékk mér mjög lítið í glas þar sem leiðin lá á Laugarvatn á laugardagsmorgun í kóræfingabúðir með kvennnakórnum Ljósbrá og var helgin í alla staði alveg rosalega góð. maturinn sem við fengu var alveg hrikalega góður og svo tók maður bara að sér að vera dj. jájá maður er bara orðin dj sópran eða eitthvað
en minns var bara með ipodinn og boseinn minn og spilaði bara alveg á útopnu. reyndar þegar allar kellurnar voru að fíla sig með einvherju 80´lagi með honum hérna kántrý kall þá fannst mér það eitthvað leiðinlegt og skipti en þær allar alveg bara hvað ég væri að gera en minns ætlaði þá að setja það aftur á en þá fraus ipodinn en hann er alveg 160 gb svo hann er svolítið seinn að hugsa og þegar ég verð óþolinmóð að bíða eftir honum vill hann fara í verkfall og frjósa...
svo er ég svo mikill dúddi að ég stóð alveg í þeirri meiningu að Hugrún ætti ekki að fara út fyrr en á fimmtudag en þá fór hún í morgun og ég náði ekki að kveðja hana
en ég var nefnilega að vinna í gær á Lundi svo þegar ég loksins sá að vinkonurnar höfðu reynt að hringja alveg 5 sinnum þá var klukkan orðin hálf eitt.
ég fór í blóprufu í morgun og læknirinn sem tók blóð úr mér er sko svæfingarlæknir og svo var hann bara eitthvað að djóka í mér og fór að segja við mig, örugglega að því að ég sagðis ekki þola nálar, að þetta væri alltaf svolítið erfitt fyrir þá læknana, þeir gerðu þetta svo sjaldan og ég spurði svona í djók tón því ég vissi að hann væri svæfingarlæknir, hvort hann væri ekki alvanur að sprauta og þá sagði hann nei bara á þriðjudögum, en það eru blóðprufudagurinn hér fyrir austan. ég var næstum farin að hlæja því maður fær ekki betri lækna til að finna æðar og stinga en svæfingalækna. hann er samt svolítið spes með frekar sérstakan húmor...
en jæja ætli ég segi þetta ekki gott í bil, já meðan ég man puttinn er orðin góður!!! blessaður get orðið lagt niður hanskana
en þar til næst
lifið heil
kveðja
Dagbjört Hulda